Mjög erfitt tímabil fyrir mig persónulega
KA

Dagur Árni Heimisson er kominn aftur heim í KA eftir eins árs dvöl á Hlíðarenda hjá Íslands- og deildarmeisturum Vals. Dagur Árni var keyptur til Vals síðasta sumar á metfé en meiðsli spiluðu stóran þátt í tímabilið hjá Degi hjá Val.

Hann lék til að mynda aðeins einn leik með Val eftir áramót.

,,Ég eignaðist marga vini og kynntist frábæru fólki. Það var frábært að vinna titlana og vera partur af þessum klefa. Þetta var hinsvegar mjög erfitt tímabil fyrir mig persónulega sem litaðist mjög mikið af óþolandi meiðslum en á sama tíma mikilvægt tímabil fyrir mig sem mun nýtast mér seinna á ferlinum," sagði Dagur Árni í samtali við Handkastið þegar hann var beðinn um að gera upp tímabilið með Val.

Nú hefst hinsvegar nýr kafli hjá þessum unga Akureyring sem er kominn aftur heim í KA-heimilið. Hann segir ástæðuna fyrir því að hann sé kominn aftur heim vera einfalda:

,,Þetta er spennandi verkefni sem ég held að ég mun njóta þess í botn að spila í. Tilfinningin er ótrúlega góð og ég hef aldrei verið svona spenntur að spila handbolta aftur. Mjög langt síðan maður spilaði almennilega og 100%."

,,Staðan er bara eins og hún er. Þetta er rosalega flókin og erfið meiðsli sem hafa verið þrálát síðan á HM síðasta sumar. Númer 1, 2 og 3 fyrir mig er að ná mér af þeim og spila aftur handbolta 100% heill," sagði Dagur sem segir að eins og staðan er í dag þá er hann ekki á leið í aðgerð og stefnir á að vera klár þegar tímabilið hefst í byrjun september.

Staðan á leikmannahópnum hjá KA er töluvert önnur núna heldur en þegar Dagur yfirgaf félagið fyrir ári síðan. KA hefur fengið til sín sterka erlenda leikmenn og þá komu bæði Ágúst Elí Björgvinsson og Dagur Gautason heim úr atvinnumennsku um áramótin. Hafði það áhrif á það að Dagur vildir snúa aftur heim?

,,Já að sjálfsögðu. Þetta er alvöru lið sem getur gert hluti," sagði Dagur Árni sem segist vera mjög spenntur fyrir komandi tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top