Hægri hornamaður FH síðustu tímabil í Olís-deild karla, Birgir Már Birgisson hefur samið við GC Amicitia Zürich til næstu tveggja ára. Hann gengur í raðir félagsins í sumar og leikur með þeim til ársins 2028 í það minnsta. Birgir Már hefur verið allgjör lykilleikmaður í FH liðinu undanfarin ár og allt frá því hann gekk til liðs við félagið árið 2018. Birgir varð einu sinni bikarmeistari, tvisvar sinnum deildarmeistari og einu sinni Íslandsmeistari með FH. ,,Mér líst mjög vel á þetta tækifæri og ég er spenntur að fá að reyna fyrir mér í öðru landi," sagði Birgir Már í samtali við Handkastið en hann heyrði fyrst af áhuga liðsins í mars á þessu ári. GC Amicitia Zürich lenti í 8. sæti svissnesku deildarinnar á tímabilinu sem leið og mætti Kadetten Schaffhausen í 8-liða úrslitum þar sem liðið tapaði því einvígi 3-0. Þá vann liðið svissneska bikarinn 2022 þegar liðið vann Pfadi Winterthur 30-28 eftir framlengdan leik. ,,Svissneska deildin hefur þróast mikið síðustu ár og hefur verið að stækka jafnt og þétt. GC Amicita Zurich er metnaðarfullt félag sem er í mikilli uppbyggingu og eftir að hafa rætt við þá og kynnt mér félagið fannst mér umhverfið og leikstíll þeirra henta mér mjög vel. Þeir eru með sterk markmið og þetta er spennandi verkefni framundan. Ég er bæði hugsaður með hlutverk sóknarlega og varnarlega hjá GC og býst því við nokkuð stóru hlutverki." Hann segir að það hafi ekkert endilega verið planið að fara út í atvinnumennsku í sumar áður en hann heyrði af áhuga svissneska félagsins. ,,Mér hefur liðið mjög vel i FH en ég hef alltaf haft það að markmiði að reyna fyrir mér erlendis. Mér fannst þessi tímapunktur henta mér vel og eftir samtöl við GC fann ég fljótt að þetta væri rétt skref fyrir mig." FH endaði í 2.sæti Olís-deildarinnar í vetur og tapaði í oddaleik í úrslitaeinvíginu gegn Val. Birgir Már segir að tímabilið hafi verið mjög lærdómsríkt. ,,Það urðu miklar breytingar á liðinu milli tímabila og ungir leikmenn tóku stærri hlutverk. Mér fannst við bæta okkur hratt og mikið í gegnum tímabilið og þá sérstaklega hrós á yngri leikmenn sem tóku gríðarlegum framförum á mjög stuttum tíma. Við ætluðum okkur hinsvegar titil í ár og það var virkilega svekkjandi að ná því ekki." Birgir Már lék átta tímabil með FH eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Víking. ,,Ég er mjög þakklátur fyrir tímann minn hjá FH. Þetta er frábært félag með háklassa umgjörð, stórkostlega stuðningsmenn og hef ég fengið að kynnast endalaust af frábæru fólki. Við höfum unnið saman titla og spilað fullt af Evrópuleikjum. Ég hef þroskast mikið sem leikmaður á þessum tíma og er stoltur af því sem við höfum afrekað saman. Ég tek með mér heilann helling af frábærum minningum og mun klárlega sakna Kaplakrikans," sagði Birgir Már að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.