Ihor Kopyshynskyi verður ekki áfram í herbúðum Aftureldingar á næsta tímabili eftir fjögur ár hjá félaginu en Handkastið hefur áður greint frá því að samningi Ihor við Aftureldingu var rift í miðri úrslitakeppni. Ihor gekk til liðs við Aftureldingu tímabilið 2022/2023 og var algjör lykilmaður þegar liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn 2023 og var hann valinn maður leiksins í bikarúrslitaleiknum sjálfum. Afturelding kveður Ihor á samfélagsmiðlum sínum í dag og þakkar honum fyrir samstarfið. SAMNINGI NÆST MARKAHÆSTA LEIKMANNSINS RIFT ,,Ihor var algjör atvinnumaður og sýndi frábært fordæmi fyrir bæði liðsfélaga og yngri flokka félagsins hvernig maður á að æfa til að ná langt og við kunnum honum bestu þakkir fyrir hans framlag til félagsins. Á tíma sínum í Mosfellsbæ lék Ihor alls 124 leiki og skoraði í þeim 532 mörk. Við óskum Ihor góðs gengis í því sem tekur við næst en hann mun alltaf vera hluti af sögunni í Aftureldingu," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu. Ihor hefur verið orðaður við nýliða Víkings sem unnu Grill66-deildina á síðustu leiktíð en Hákon Daði Styrmisson gekk á dögunum í raðir Aftureldingar og fyllir skarð Ihors hjá félaginu. Víkingar voru einnig í viðræðum við Hákon Daða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.