Eins og staðan er í dag er hann hættur
HSÍ

Magnús Óli Magnússon leikmaður Íslands- og deildarmeistara Vals gaf það óvænt út eftir að hafa tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn að hann væri hættur eða í það minnsta 95% líkur á að hann sé hættur.

Samningur Magnúsar Óla við Val rennur út í sumar en hann gekk í raðir Vals sumarið 2017 og var að ljúka sínu níunda tímabili hjá Val en hann er uppalinn hjá FH en gekk í raðir Vals frá Ricoh í Svíþjóð á sínum tíma.

95% LÍKUR Á AÐ MAGNÚS ÓLI SÉ HÆTTUR

Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals var spurður út í stöðuna á Magnúsi Óla í nýjasta hlaðvarpsþætti Handkastsins.

,,Magnús Óli varð samningslaus í sumar en ég átti fund með honum í janúar og þar ræddum við þetta og við ætluðum að ræða þetta eftir tímabilið. Síðan tilkynnir hann eftir leik að hann sé hættur."

,,Ég og Maggi höfum aðeins spjallað saman og hann tekur frí í sumar og síðan sjáum við bara til. Eins og staðan er í dag þá er hann hættur en hann veit að það eru opnar dyr fyrir hann að koma aftur og vera með okkur allavegana eitt tímabil í viðbót. Þá mögulega í einhverju öðru hlutverki en það verður að koma í ljós," sagði Gústi Jó. sem segir að það ætti ekki að koma mönnum á óvart ef hann myndi taka upp símtalið og hringja í Magnús Óla í kringum Verslunarmannahelgina og heyra í honum hljóðið.

Agnar Smári Jónsson og Róbert Aron Hostert lögðu einnig skóna á hilluna eftir tímabilið eftir farsælan feril.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top