Guðmundur Bragi skiptir um lið
8ERNER

Guðmundur Bragi Ástþórsson er samkvæmt heimildum Handkastsins að yfirgefa danska félagið TMS Ringsted eftir eins árs dvöl hjá félaginu og er að ganga í raðir austurríska úrvalsdeildarfélagsins, Bregenz.

Guðmundur gekk í raðir TMS Ringsted síðasta sumar og skrifaði undir eins árs samning við félagið, samningur hans rennur því út í sumar. Hann gekk í raðir TMS Ringsted eftir eitt ár hjá Bjerringbro/Silkeborg.

Guðmundur Bragi sem er uppalinn hjá Haukum sló í gegn með Haukum í Olís-deild karla tímabilið 2023/2024 áður en hann gekk í raðir Bjerringbro/Silkeborg.

Fari svo að Guðmundur Bragi gangi í raðir Bregenz verða áfram tveir Íslendingar í deildinni en Tumi Steinn Rúnarsson leikur einnig í Austurríki en hann skiptir í sumar um félag og gengur í raðir HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach frá Alpla Hard.

Bregenz endaði í 10.sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili og endaði síðan efst í fjögurra liða fallbaráttu riðli sem tók við af deildarkeppninni lokinni.

Guðmundur Bragi skoraði 71 mar fyrir TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni í vetur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top