Sá markahæsti í Mosfellsbænum samningslaus
Egill Bjarni Friðjónsson)

Þriggja ára samningur sem Árni Bragi Eyjólfsson skrifaði undir við Aftureldingu sumarið 2023 rann út um mánaðarmótin. Árni Bragi er því samningslaus og óvíst er hvort hann leiki með liðinu í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Árni Bragi sem er uppalinn í Aftureldingu hefur á ferlinum leikið með Kolding í dönsku úrvalsdeildinni og þá lék hann eitt tímabil með KA 2020/2021 og varð meðal annars markakóngur Olís-deildarinnar það tímabil.

,,Eins og staðan er í dag þá ég er ekki búinn að ákveða neitt. Ég sé hinsvegar ekki fyrir mér að fara neitt annað. Það þyrfti í það minnsta að vera eitthvað mjög spennandi. Eins og staðan er í dag þá snýst þetta aðallega um það hvort ég ætla að hætta eða að vera áfram í Mosó," sagði Árni Bragi í samtali við Handkastið er hann var spurður út í framtíðina hjá sér.

Árni Bragi skoraði 128 mörk fyrir Aftureldingu í Olís-deildinni og úrslitakeppninni í vetur en liðið endaði í 6.sæti deildarinnar og tapaði í 8-liða úrslitum gegn Haukum í oddaleik 2-1. Hann var markahæsti leikmaður Aftureldingar á tímabilinu.

Ihor Kopyshynskyi annar markahæsti leikmaður liðsins í vetur hefur yfirgefið félagið en samningi hans við félagið var rift. Hákon Daði Styrmisson gekk á dögunum í raðir félagsins frá ÍBV og fyllir skarð Ihors.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top