Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Elvar Otra Hjálmarsson sem gengur til liðs við félagið frá ÍR. Víkingur eru nýliðar í Olís-deild karla eftir að hafa unnið Grill66-deildina á síðustu leiktíð. ,,Elvar Otri er öflugur leikstjórnandi sem kemur til með að styrkja leikmannahóp Víkings verulega. Hann er marksækinn, les leikinn vel og býr yfir góðri ákvarðanatöku í sóknarleiknum. Þá er hann jafnframt sterkur varnarmaður sem passar vel inn í þá leikstílshugsun og þann metnað sem Víkingur vill standa fyrir," segir í tilkynningunni frá nýliðunum. Elvar Otri lék eitt tímabil með ÍR en áður lék hann með Gróttu en Elvar er uppalinn hjá Fjölni. Elvar hefur fallið úr Olís-deildinni síðustu tvö tímabil. „Við erum mjög ánægð með að fá Elvar Otra til liðs við okkur. Hann er leikmaður sem getur stýrt leiknum, skapað færi fyrir aðra og tekið ábyrgð sjálfur þegar á þarf að halda. Auk þess er hann öflugur varnarlega og bætir bæði gæði og breidd í hópinn,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings. Elvar Otri er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Víkings en áður hafði félagið fengið Gunnar Hrafn Pálsson og Þorgeir Bjarka Davíðsson frá Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.