Tapaði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað árið í röð
Attila KISBENEDEK / AFP

Danska landsliðskonan Helena Elver varð að sætta sig við tap í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu annað árið í röð þegar Györ beið lægri hlut gegn Metz 31-29, í úrslitaleiknum í Búdapest um helgina.

Metz tryggði sér þar með sinn fyrsta Meistaradeildartitil í sögu félagsins, en Györ hafði farið inn í úrslitahelgina sem ríkjandi meistari síðustu tvö tímabil.

Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Elver eftir leikinn.

„Við vorum bara ekki nógu hugrakkar í því sem við vildum gera. Þetta er drullulélegt, finnst mér í rauninni. Ég á ekki mörg orð núna,“ sagði Elver í samtali við DR Sporten eftir leikinn.

Franska liðið hafði undirtökin stærstan hluta leiksins og náði á tímabili sex marka forskoti. Györ tókst að minnka muninn undir lokin og hleypa spennu í leikinn á ný, en það dugði ekki til og Metz hélt út til sigurs.

Elver sem gekk í raðir Györ síðasta sumar frá Odense hefur nú upplifað tvö töp í röð í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Á síðasta tímabili lék hún með Odense Håndbold sem beið einnig ósigur í úrslitaleiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top