Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson sem leikið hefur verið með Veszprém í Ungverjalandi undanfarin ár var valinn í lið tímabilsins í ungversku deildinni en hann varð ungverskur meistari með liðinu á dögunum. Bjarki Már Elísson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið en samningur hans rennur út í sumar og verður hann ekki áfram í herbúðum félagsins. Enn sem komið er ekki víst hvar Bjarki Már leikur á næstu leiktíð en Bjarki varð 36 ára í síðasta mánuði. Bjarki var átti frábært tímabil í Ungverjalandi og er einn af fimm leikmönnum Veszprém í liði tímabilsins. Ásamt Bjarka eru Mikael Appelgren, Ivan Martinovic, Dragan Pechmalbec og Hugo Descat allir í liði ársins en Hugo Descat og Bjarki Már deildu vinstri hornastöðunni saman á tímabilinu. Lið tímabilsins í Ungverjalandi er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.