Nýliðar Víkings í Olís-deild karla hefur fengið Kristján Rafn Oddsson en hann gengur til liðs við félagið frá ÍH. Kristján Rafn sem er uppalinn hjá FH lék með ÍH í Grill66-deildinni á nýafstöðnu tímabili. Þá hefur Kristján einnig verið hluti af yngri landsliðum Íslands. Kristján er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Víkings frá því að liðið vann sér sæti í Olís-deildinni. „Við erum mjög ánægð með að fá Kristján Rafn til liðs við okkur. Hann er ungur, metnaðarfullur og efnilegur markmaður sem hefur sýnt góða takta. Hann kemur úr góðu umhverfi og við teljum að hann geti tekið áframhaldandi skref hjá Víkingi,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings. Áður höfðu þeir Gunnar Hrafn Pálsson og Þorgeir Bjarki Davíðsson gengið í raðir Víkings frá Gróttu og Elvar Otri Hjálmarsson frá ÍR.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.