Stórleikur í 1.umferðinni í Grill66-deild karla
Sævar Jónasson

HSÍ hefur gefið út leikjaniðurröðunina fyrir Grill66 - deild karla fyrir næstu leiktíð en tólf lið taka þátt í Grill66-deildinni.

ÍR féll úr Olís-deild karla og þá vann Víðir og Víkingur 2 sér sæti í deildinni eftir góðan árangur í 2.deildinni á síðustu leiktíð.

Það verður sannkallaður stórleikur í 1. umferðinni þegar Harðverjar taka á móti ÍR fyrir vestan. Hörður tapaði í úrslitaeinvíginu um laust sæti í Olís-deildinni gegn Stjörnunni á síðustu leiktíð. Grótta sem var hársbreidd frá því að vinna deildina á síðustu leiktíð fær nýliða Víðis í heimsókn í 1.umferðinni.

Hér að neðan er hægt að sjá fyrstu tvær umferðirnar í Grill66-deildinni en leikjaniðurröðunina má sjá hér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top