Danska landsliðsmarkvörðurinn Sandra Toft er nú sterklega orðuð við rúmenska stórliðið CSM Búkaresti eftir að fréttir fóru að berast af mögulegum félagaskiptum hennar frá ungverska liðinu Györ. Samkvæmt fréttum er Toft sögð vera nálægt því að semja við CSM og gætu félagaskiptin orðið ein af stærri sögum sumarsins í evrópskum handbolta. Rétt er þó að taka fram að um óstaðfestan orðróm er að ræða og engar opinberar upplýsingar hafa komið fram frá félögunum eða leikmanninum sjálfum. Þrátt fyrir það er auðvelt að sjá hvers vegna þessar sögusagnir hafa fengið byr undir báða vængi. Toft hefur átt erfitt uppdráttar hjá Györ á nýliðnu tímabili þar sem þjálfarinn Per Johansson hefur ítrekað treyst frekar á markverðina Zsófi Szemerey og Hatadou Sako. Þar af leiðandi hefur Toft ekki alltaf verið fyrsti kostur á milli stanganna hjá ungverska liðinu. Flutningur til CSM myndi einnig passa vel inn í þá uppbyggingu sem rúmenska félagið vinnur nú að. Þar er Bojana Popovic við stjórnvölinn, en hún starfar einnig sem aðstoðarþjálfari danska landsliðsins og þekkir Toft afar vel. Þá verða dönsku landsliðskonurnar Emma Friis og Anne Mette Hansen áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili. Toft, sem var valin besti handboltamaður heims af Alþjóðahandknattleikssambandinu árið 2021, hefur á ferlinum unnið Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina, unnið landsmeistaratitla í Frakklandi, Noregi og Ungverjalandi. Hún hefur einnig verið lykilmaður í danska landsliðinu sem hefur unnið til verðlauna á Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum og Evrópumótum. Ef CSM nær að landa þessum frábæra markverði yrði það gríðarlega sterkt skilaboð frá félaginu eftir að liðið komst aftur í FINAL4 Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í átta ár á nýliðnu tímabili. En að svo stöddu er þetta enn aðeins orðrómur. Sterkur orðrómur – en orðrómur engu að síður.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.