Þetta var ekkert endilega planið hjá mér persónulega
Selfoss

Örn Þrastarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Selfossi og tekur við af Carlos Martin Santos sem lét af störfum eftir síðasta tímabil.

Örn er öllum handknattleiksáhugamönnum á Selfossi að góðu kunnur enda hefur hann starfað lengi innan félagsins og komið að þjálfun fjölmargra leikmanna sem nú skipa meistaraflokkinn.

Hann segir verkefnið bæði spennandi og krefjandi.

„Mér líst mjög vel á verkefnið. Liðið er skipað mörgum mjög ungum og spennandi leikmönnum ásamt nokkrum aðeins eldri, en þó ekki gömlum. Nánast allir eru uppaldir leikmenn sem ég þekki vel enda hef ég þjálfað þá alla í yngri flokkum,“ sagði Örn í samtali við Handkastið.

Selfoss hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á uppbyggingu eigin leikmanna og segir Örn að það verði áfram grunnurinn að starfinu.

„Verkefnið verður vissulega krefjandi og hver leikur verður bardagi, en ég óttast það ekki. Strákarnir sýndu það í fyrra að þeir eru tilbúnir að selja sig dýrt fyrir málstaðinn og það er eitthvað til að byggja á.“

Þrátt fyrir að hafa starfað lengi hjá félaginu segir Örn að það hafi ekki endilega verið á dagskránni að taka við meistaraflokknum á þessum tímapunkti.

„Ég ætla ekkert að ljúga því að þetta var ekkert endilega planið hjá mér persónulega. Ég var mjög sáttur í því sem ég var að gera og hef aðallega gaman af því að þjálfa og hjálpa leikmönnum að taka næstu skref. En ég varð fljótt spenntur fyrir þessu og gat ekki skorast undan þessu spennandi verkefni.“

Litlar breytingar verða á leikmannahópnum fyrir komandi tímabil. Reynsluboltinn Sverrir Pálsson hefur lagt skóna á hilluna en að öðru leyti helst hópurinn nær óbreyttur.

„Flestir halda áfram eins og staðan er núna. Stefnan er ekki að taka fleiri leikmenn inn í hópinn að svo stöddu. Við erum með fullt af ungum strákum sem spiluðu sínar fyrstu mínútur í fyrra og gerum ráð fyrir þeim sterkari og betri en í fyrra.“

Örn segir jafnframt að fleiri efnilegir leikmenn séu á leiðinni upp úr yngri flokkum á næstu árum.

„Við eigum nokkra mjög efnilega árganga sem byrja að detta inn í liðið í vetur og svo næstu árin. Við ætlum að byggja á okkar mönnum og halda áfram að reyna að koma þeim í fremstu röð. Hvar það skilar okkur í töfluna verður að koma í ljós, en markmiðið er að sjálfsögðu að gera betur en í fyrra.“

Carlos Martin Santos skildi eftir sig stór spor hjá Selfossi og segir Örn að framlag hans til félagsins hafi verið gríðarlegt.

„Carlos gerði frábæra hluti á Selfossi og hans verður vissulega saknað. Ekki bara hjá meistaraflokknum heldur á mörgum vígstöðvum. Ég vann mikið með honum og við erum góðir félagar.“

Hann telur þó að félagið sé vel í stakk búið til að halda áfram vegferð sinni þrátt fyrir brotthvarf Spánverjans.

„Maður kemur í manns stað. Carlos er hættur að þjálfa liðið eins og margur forveri hans á undan honum. Nú hefst bara nýtt verkefni og við lítum ekkert í baksýnisspegilinn með það.“

Þó að Örn hyggist byggja áfram á því sem vel hefur verið gert hjá Selfossi undanfarin ár segist hann jafnframt ætla að setja sinn svip á liðið.

„Við munum að sjálfsögðu reyna að halda í marga hluti sem þeir gerðu vel undir stjórn Carlosar, en ég mun líka reyna að koma mínum áherslum inn með tíð og tíma. Ég á örugglega eftir að reka mig á marga veggi þar, en ég lít á þetta sem samvinnuverkefni hjá mér, teyminu og strákunum í liðinu.“

Selfoss endaði í 10.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð sem nýliðar í deildinni og voru hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top