Íslands- og deildarmeistarinn, Þorvaldur Örn Þorvaldsson hefur samið við pólska félagið GE Wybrzeże Gdansk líkt og Handkastið greindi frá í síðasta mánuði. Hann var kynntur sem nýr leikmaður liðsins á samfélagsmiðla síðu félagsins um helgina. Þorvaldur fór til Póllands í byrjun árs á reynslu hjá félaginu og fékk í kjölfarið samningstilboð frá pólska liðinu en liðið endaði í 4.sæti pólsku úrvalsdeildarinnar með 48 stig, stigi á eftir 3.sætinu. Þorvaldur varð í Íslandsmeistari með Val eftir sigur gegn FH 27-26 í oddaleik úrslitaeinvígisins. Þorvaldur sem er fæddur árið 2004 er uppalinn hjá Val og hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu undanfarin tvö tímabil. Hér að neðan má sjá kynningarmyndband af Þorvaldi í sólinni í Póllandi þar sem hann kynnir sig fyrir stuðningsmönnum liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.