Við ætlum okkur klárlega stóra hluti á næsta tímabili
Egill Bjarni Friðjónsson)

Markmaðurinn Ágúst Elí Björgvinsson samdi við KA í desember 2025 og kom heldur betur eins og stormsveipur inn í liðið og átti nokkrar frábærar frammistöður á síðasta keppnistímabili.

Hann átti til að mynda einna stærstan þátt í því að KA vann ÍBV 2-0 í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins þar sem hann fór á kostum og lokaði markinu á köflum.

Ágúst Elí kom til KA frá Ribe Esbjerg í Danmörku þar sem hann var í 4 ár. Þar áður var hann í Kolding í Danmörku og Savehöf í Svíþjóð í samtals 4 ár. En hann er uppalinn FH-ingur eins og flestum ætti að vera kunnugt um.

Við ákváðum að heyra aðeins í Ágústi Elí og láta hann segja okkur frá fyrstu 6 mánuðunum í KA, lífinu á Akureyri og hvernig hann sér næsta tímabil fyrir sér.

"Við erum búin að koma ótrúlega vel inn í samfélagið hér á Akureyri og fengið frábærar viðtökur. Það eru flestir í kringum klúbbinn sem eru alveg eðalmanneskjur og hafa hjálpað okkur mikið að koma okkur inn í allt. Hjálpuðu okkur líka með flutningana og allt sem því fylgir að flytja með 4 manna fjölskyldu frá öðru landi. Allt í kringum klúbbinn er bara mjög fínt og það er kappkostað að hafa allt gott. Okkur líður mjög vel hérna og við njótum allrar þeirrar góðu útivistar sem Akureyri hefur upp á að bjóða. Hlíðarfjall og Kjarnaskógur nýtur mikilla vinsælda hjá okkur"

"Stelpurnar okkar njóta sín mjög vel á leikskólanum og konan mín hefur náð að koma sér vel inn í nýja vinnu hér sem lyfjafræðingur og allt batteríið rúllar mjög vel. Við erum mun nær stórfjölskyldunni hér en þegar við vorum í Danmörku. En það er reyndar sama hvort við séum á Norðurlöndunum, Akureyri eða Reykjavík. Okkur líður best saman"

"Varðandi næsta tímabil að þá erum við mjög glaðir að hafa fengið Dag Árna til liðs við okkur og næsta tímabil verður spennandi. Við ætlum ekki að fara í neinar grafgötur með það að við ætlum okkur klárlega stóra hluti á næsta tímabili. Planið er að berjast í toppbaráttunni og gera okkar besta til að reyna að vinna eitthvað. Við erum brattir en vitum líka að sjálfsögðu að það þarf ansi margt til að ganga upp. Við þurfum að æfa eins og tittlingar, hafa gaman af þessu og vera helst meiðslafríir. Ég er mjög spenntur fyrir næsta tímabili og vona að KA-fólk sé það líka"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top