Þór frá Akureyri er samkvæmt heimildum Handkastsins í viðræðum við línumanninn, Jón Ómar Gíslason sem fékk sig lausan undan samningi sínum við bikarmeistara Hauka eftir tímabilið. Jón Ómar lék eitt tímabil með Haukum undir stjórn Gunnars Magnússonar og varð bikarmeistari með liðinu á nýafstöðnu tímabili eftir sigur á ÍR í úrslitaleik Powerade-bikarsins. Jón Ómar gekk í raðir Hauka eftir dvöl sína hjá Gróttu. Jón Ómar var hinsvegar í litlu hlutverki í liði Hauka á tímabilinu og fékk samningi sínum rift í kjölfarið. Þórsarar sem hafa styrkt liðið sitt með fjórum dönskum leikmönnum frá síðustu leiktíð eru í leit af línumanni til að fylla skarð Kára Kristjáns Kristjánssonar sem lék með Þór óvænt á síðustu leiktíð í Olís-deildinni. Hafa Þórsarar mikinn áhuga að fá Jón Ómar til sín og samkvæmt heimildum Handkastsins standa viðræður milli Þórs og leikmannsins yfir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.