Á föstudaginn mun Evrópska handknattleikssambandið, EHF tilkynna hvaða 24 félög taka þátt í Meistaradeild Evrópu karla á næstu leiktíð. Fram undan eru umfangsmiklar breytingar á keppnisfyrirkomulagi bæði Meistaradeildarinnar og Evrópudeildarinnar. Fjöldi liða í Meistaradeildinni verður aukinn úr 16 í 24 og munu því átta fleiri félög fá tækifæri til að taka þátt í sterkustu félagsliðakeppni Evrópu. Alls hafa 27 félög sótt um þátttöku í keppninni. Tólf lið eru þegar komin með öruggt sæti í riðlakeppninni, ellefu eftir árangurs síns í heimalandinu og eitt til viðbótar, MT Melsungen, eftir sigur í Evrópudeild Evrópu á nýliðinni leiktíð. Félögin sem þegar hafa tryggt sér þátttökurétt eru RK Zagreb, Álaborg, FC Barcelona Handbol, Paris Saint-Germain Handball, SC Magdeburg, Veszprém HC, Kolstad, Industria Kielce, MT Melsungen, Sporting CP og Dinamo București. Tíu félög sem ekki urðu landsmeistarar í sínum heimalöndum hafa einnig sótt um sæti í keppninni. Þar á meðal eru Skanderborg AGF, GOG, HBC Nantes, Montpellier Handball, Füchse Berlin, Pick Szeged, Tatabánya KC, Elverum Håndball, Wisła Płock og FC Porto. Sex landsmeistarar hafa jafnframt sótt um laus sæti í keppninni. Þar er meðal annars um að ræða Íslandsmeistara Valur sem bíða nú eftir niðurstöðu EHF. Auk Vals hafa Partizan, RK Vardar, HC Kriens-Luzern, IFK Kristianstad og RK Celje einnig lagt inn umsókn. Ákvörðun EHF á föstudag mun því skera úr um hvort Valur verði meðal þeirra 24 félaga sem fá tækifæri til að keppa í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eða hvort Valur leiki í Evrópudeildinni.Þessi félög sækjast eftir þátttöku í Meistaradeildinni

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.