Einar Jónsson þjálfari karlaliðs Fram í Olís-deildinni hefur framlengt samningi sínum við Fram til þriggja ára. Einar er þar með samniningsbundinn Fram til ársins 2029. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. ,,Einar þarf vart að kynna en hann er einn af dáðustu sonum félagssins og hefur verið lykilmaður í uppbyggingu okkar starfs í þrjá áratugi, með stuttum hléum," segir í tilkynningunni frá Fram. Einar Jónsson hefur stýrt karlaliði Fram til tveggja síðustu Íslandsmeistaratitla félagsins, þann síðari tímabilið 2024/2025 þegar liðið varð bæði Íslands- og bikarmeistari. ,,Einar er hrikalega fær þjálfari sem hefur alltaf náð því besta úr sínum mannskap og er með hrikalega spennandi lið í höndunum fyrir næsta tímabil. Við óskum Fram og Einari til hamingju með samninginn og áframhaldandi samstarf," segir enn fremur í tilkynningunni frá Fram. Fram endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð og féll úr leik í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar, 2-0 eftir tap gegn FH.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.