Fengu tæpar 40 milljónir fyrir sigur í Meistaradeildinni
EHFCL

Franska kvennaliðið Metz Handball sem vann Meistaradeild Evrópu á dögunum fékk hæstu verðlauna greiðsluna sem úthlutað var af EHF en samanlagt var tæplega 900 þúsund evrum úthlutað til þeirra fjögurra liða sem komust í úrslitahelgina í Búdapest sem fram fór í byrjun júní.

Það mætti segja að fjárhagslegu verðlaunin séu nokkuð hófleg í samanburði við margar aðrar evrópskar íþróttagreinar.

Samkvæmt Handball Feminin skiptust alls 877.500 evrur á milli liðanna fjögurra sem tóku þátt í Final4-keppni Meistaradeildarinnar.

Nýkrýndir Evrópumeistarar Metz Handball fengu stærstan hlut verðlaunafjárins, eða 273.500 evrur eða tæplega 40 milljónir íslenskra króna. Ungverska stórliðið Györ, sem laut í lægra haldi í úrslitaleiknum, fékk 241.000 evrur (tæplega 35 milljónir íslenska króna) inn á sinn bankareikning.

Rúmenska liðið CSM Búkarest, sem hafnaði í þriðja sæti, fékk 195.000 evrur í sinn hlut, en franska félagið Brest Bretagne Handball fékk 168.000 evrur fyrir þátttöku sína.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top