Leiktímar Íslands á HM 2027 staðfestir
Johan Nilsson/TT / TT NEWS AGENCY / AFP)

Leiktímar íslenska karlalandsliðsins á heimsmeistaramótinu 2027 hafa verið staðfestir, en mótið fer fram í Þýskalandi dagana 13. til 31. janúar. Ísland leikur í H-riðli ásamt Barein, Japan og Norður-Makedóníu.

Íslenska liðið hefur keppni fimmtudaginn 15. janúar þegar það mætir Barein. Tveimur dögum síðar tekur liðið á móti Japan áður en riðlakeppninni lýkur með leik gegn Norður-Makedóníu 19. janúar.

Leikir Íslands í riðlakeppninni eru þessir:

15. janúar: Ísland – Barein kl. 18:30

17. janúar: Ísland – Japan kl. 18:30

19. janúar: Ísland – Norður-Makedónía kl. 18:30

Ísland var í efsta styrkleikaflokki þjóða á mótinu þegar dregið var í riðla og leikur leiki sína í riðlakeppninni í Magdeburg, nánar tiltekið í GETEC höllinni.

Þrjú efstu lið hvers riðils komast áfram í milliriðla þar sem barist verður um sæti í átta liða úrslitum. Miklar væntingar eru gerðar til íslenska liðsins eftir góðan árangur á Evrópumótinu fyrr á árinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top