Lykke verður áfram í Mosó
Egill Bjarni Friðjónsson

Daninn Oscar Lykke verður áfram í herbúðum Aftureldingar í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Þetta staðfesti nýráðinn þjálfari liðsins, Hrannar Guðmundsson í samtali við Handkastið.

Oscar Lykke gekk í raðir Aftureldingar fyrir síðustu leiktíð en hann skoraði 94 mörk með liðinu í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni en Afturelding féll úr leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins eftir tap í oddaleik gegn Haukum 2-1.

Stefán Árnason þjálfari liðsins var í kjölfarið sagt upp störfum og hefur félagið nú samið við Hrannar Guðmundsson um að taka við liðinu en með honum verður Ingimundur Ingimundarson.

Yfirgefur Lykke Aftureldingu í sumar?

Fjallað var um þann möguleika í apríl að Oscar Lykke gæti mögulega yfirgefið Aftureldingu í sumar þrátt fyrir að vera á samning en nú hefur Hrannar Guðmundsson þjálfari Aftureldingar staðfest að Daninn verði áfram í herbúðum Aftureldingar.

Afturelding hefur fengið til sín þá Hans Jörgen Ólafsson og Hákon Daða Styrmisson og mun mæta með gríðarlega sterkt lið til leiks í Olís-deild karla á næstu leiktíð en liðið endaði í 6.sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top