Eftir að áhugi FH varð raunverulegur var þetta aldrei spurning
FH

Ágúst Guðmundsson hægri skytta HK síðustu ára og leikmaður U20 ára landsliðs Íslands gekk á dögunum í raðir FH í Olís-deild karla.

Handkastið heyrði í nýjasta leikmanni FH og spurði hann aðeins út í þá ákvörðun hans að ganga í raðir FH og kveðja uppeldisfélag sitt HK þar sem hann hefur verið í stóru hlutverki síðustu ár.

,,FH er einn stærsti og mest spennandi klúbbur landsins. Mér líst frábærlega á þjálfarateymið, umgjörðina og þann metnað sem er í Krikanum. Mig hefur alltaf langað að spila á stóra sviðinu og ég tel FH vera góðan kost til að láta það rætast," sagði Ágúst sem segir að það hafi aðrir kostir verið í stöðunni.

,,Það voru nokkur félög sem höfðu samband en FH var það eina sem kom til greina."

,,Tilfinningin að vera komin í FH er mjög góð, ég hef fengið mjög góðar móttökur í Krikanum og hlakka mikið til að þroskast í þessu umhverfi."

Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK nefndi í viðtali við Handkastið á dögunum að ungir leikmenn sjá oft eitthvað meira og stærra hjá öðrum liðum en sjá kannski ekki hvað þeir hafa bætt sig og þroskast þar sem þeir. Ágúst var spurður út í þessi ummæli Halldórs.

,,Ég er mjög þakklátur fyrir minn tíma í HK og það traust sem Dóri sýndi mér. En eftir að áhugi FH varð raunverulegur var þetta aldrei spurning."

,,Tímabilið hjá HK var upp og niður, við ætluðum okkur mikið meira, lentum í brekku í byrjun og vorum einnig að díla við meiðsli. En áttum ágætis úrslitakeppni á móti Val en það dugði ekki til," sagði Ágúst að lokum aðspurður út í tímabilið sem lauk í síðasta mánuði hjá HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top