Átta mig eflaust á þessu eftir nokkra daga
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Landsliðsmarkvörðurinn, Viktor Gísli Hallgrímsson varð um síðustu helgi Evrópumeistari með félagsliði sínu Barcelona eftir sigur á Fucshe Berlín í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Barcelona vann leikinn með þremur mörkum 37-34 en liðið vann Álaborg í undanúrslitum eftir framlengdan leik. Viktor Gísli lauk því sínu fyrsta tímabili með Barcelona á fullkomin hátt en liðið vann alls sjö titla á tímabilinu.

,,Ég mun eflaust ekki átta mig almennilega á þessu fyrr en eftir nokkra daga,“ sagði Viktor Gísli Hallgrímsson í samtali við Morgunblaðið.

Viktor Gísli gekk í raðir Barcelona frá Wisla Plock síðasta sumar en hann sagði í viðtali við Handkastið í aðdraganda úrslitahelgarinnar í Köln að hann væri búinn að bíða eftir þessu tækifæri síðan hann var ungur.

„Tilfinningin var geggjuð þegar flautað var til leiksloka en á sama tíma var hún líka frekar skrítin. Maður er búinn að bíða mjög lengi eftir þessari helgi og þetta er eitthvað sem mann hefur dreymt um frá því að maður var krakki, það er að vinna Meistaradeildina. Tilfinningin núna er mjög góð en skrítin líka og hún verður það eflaust eitthvað áfram,“ sagði Viktor Gísli.

„Ég bjóst ekki alveg við því að tapa bara einum leik allt tímabilið, sérstaklega ekki þar sem við fengum inn marga nýja leikmenn fyrir tímabilið. Liðið í ár er í raun algjörlega lið sem þjálfarinn, Antonio Carlos, er búinn að púsla saman frá grunni. Hann tók við árið 2021 og síðan þá hefur hann verið í því að byggja upp sitt lið sem er í raun orðið fastmótað í dag. Spænska deildin er ekki sú erfiðasta, sem gerir það að verkum að þú færð oft fleiri frídaga en annars staðar. Sem keppnismaður vill maður vinna alla leiki og það hefur svo sannarlega ekki vantað upp á það í ár. Lífsgæðin hérna eru frábær líka, sól og blíða á hverjum einasta degi nánast. Kærustunni minni líður ótrúlega vel líka þannig að þetta er búið að vera draumur í dós og þetta fyrsta tímabilið hefur liðið mjög hratt,“ sagði Viktor Gísli í samtali við Morgunblaðið.

Emil Nielsen sem hefur staðið meira og minna í marki Barcelona í vetur fer til Ungverjalands í sumar og má búast við því að tækifærum Viktors Gísla á næsta tímabili verði töluvert fleiri en á liðnu tímabili. Spánverjinn, Sergey Hernandez gengur í raðir Barcelona frá Magdeburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top