Stjórn evrópska handknattleikssambandsins (EHF) hefur staðfest niðurstöðu matsnefndar um umsóknir félaga um sæti í Meistaradeild Evrópu tímabilið 2026/27. Áfram verða sextán félög sem taka þátt í Meistaradeild Evrópu kvennamegin en miklar breytingar verða á karla keppninni þar sem fjölgað verður úr sextán liðum í 24. Valur fékk ekki sæti í Meistaradeildinni Dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildarinnar næstkomandi föstudag. Ljóst er að Íslendingaliðið, Blomberg-Lippe leikur í Meistaradeildinni á komandi tímabili eftir að hafa orðið þýskur meistari eftir sigur á Dortmund í úrslitaeinvíginu. Á næsta tímabili leika með Blomberg-Lippe þær Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir en Andrea Jacobsen gengur í raðir ÍBV í sumar. Sjö félög sóttu um sex laus sæti í Meistaradeildina að þessu sinni og var norska félagið, Molde það félag sem dró stuttastráið og fékk ekki þátttökusæti í keppnina á næstu leiktíð. Félög sem höfðu unnið sér inn þátttöku í Meistaradeildinni:
HC Podravka
Team Esbjerg
Brest Bretagne Handball
Metz Handball
HSG Blomberg-Lippe
Györi Audi ETO KC
OTP Group Budućnost
Storhamar Håndball Elite
Gloria Bistrita
RK Krim OTP Group Mercator
Félög sem fengu uppfærslu í Meistaradeildina:
Odense Håndbold
Nykøbing Falster Håndbold
BV Borussia Dortmund
FTC
Sola Handballklubb
CSM Bucuresti
Félag sem fékk ekki uppfærslu í Meistaradeildina:
Molde Elite

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.