Elvar Otri Hjálmarsson gekk á dögunum í raðir Víkings sem eru nýliðar í Olís-deild karla eftir að hafa unnið Grill66-deildina á síðustu leiktíð. Elvar Otri gengur í raðir Víkings frá ÍR sem féll úr Olís-deildinni en Elvar Otri lék eitt tímabil með ÍR eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Gróttu. Handkastið sló á þráðinn og heyrði í nýjasta leikmanni Víkings, Elvari Otra Hjálmarssyni en hann sagðist hafa heyrt fyrst í Víkingum undir lok síðasta mánaðar. ,,Það voru bara mjög góð samtöl frá byrjun og mér leist fljótt vel á verkefnið. Það kom alveg til greina að vera áfram hjá ÍR, mér leið vel þar og átti gott tímabil með liðinu þrátt fyrir erfiða niðurstöðu. En það vó þungt hjá mér að fá tækifæri til að spila áfram í efstu deild," sagði Elvar Otri. ,,Mér líst mjög vel á næsta tímabil. Ég held að við getum komið mörgum á óvart. Það er flott orka í félaginu og mér finnst spennandi að koma inn í hóp sem er hungraður í að sanna sig í deildinni," sagði Elvar en hann er einn af fimm nýjum leikmönnum sem gengið hafa í raðir Víkings frá því að liðið vann sér sæti í Olís-deildinni. ,,Ég þekki aðeins til liðsins og nokkra leikmenn í hópnum. Sérstaklega stráka sem ég hef spilað á móti í yngri flokkum, til dæmis Ásgeir og Rökkva. Svo þekki ég auðvitað til liðsins sem andstæðingur og veit að þetta er hópur með mikinn metnað." Elvar Otri hefur fallið úr Olís-deildinni síðustu tvær leiktíðir, fyrst með Gróttu og nú síðast ÍR. Nú er hann genginn í raðir Víkings sem hefur ekki haldið sæti sínu í efstu deild á Íslandi svo elstu menn muna. Var það eitthvað sem hann spáði í, í viðræðunum við Víking? ,,Nei, ég spáði satt að segja ekki mikið í það. Ég horfði fyrst og fremst á verkefnið sem er fram undan. Mér leist vel á stefnuna hjá félaginu og á samtölin við þjálfarateymið. Ég hef trú á hópnum og mér fannst þetta rétt skref fyrir mig. Markmiðið er auðvitað að hjálpa liðinu að festa sig í sessi í efstu deild."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.