Þrír Frakkar í liði ársins
Attila KISBENEDEK / AFP

Evrópska handknattleikssambandið (EHF) hefur tilkynnt lið ársins í evrópskum kvennahandbolta fyrir tímabilið 2025/26.

Lið ársins var valið með eftir kosningu stuðningsmanna, leikmanna, þjálfara og fjölmiðla en hver hópur hafði 25 prósenta vægi í kosningunni.

Nýkrýndir Evrópumeistarar Metz frá Frakklandi eiga flesta fulltrúa í liðinu, eða fjóra talsins. Silfurlið Győri Audi ETO KC frá Ungverjalandi á þrjá fulltrúa og danska félagið, Team Esbjerg einn.

EHF mun einnig velja verðmætasta leikmann tímabilsins (MVP) úr þessum hópi leikmanna. Þá verður besti ungi leikmaður tímabilsins, 21 árs eða yngri, einnig verðlaunaður. Tilkynnt verður um MVP-verðlaunin og bestu unga leikmanninn við drátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu sem fram fer á föstudaginn.

Lið ársins skipa:

  • Markvörður: Johanna Bundsen (Svíþjóð / Metz Handball)
  • Vinstri horn: Chloé Valentini (Frakkland / Metz Handball)
  • Vinstri skytta: Bruna de Paula (Brasilía / Győri Audi ETO KC)
  • Miðjumaður: Henny Reistad (Noregur / Team Esbjerg)
  • Hægri skytta: Dione Housheer (Holland / Győri Audi ETO KC)
  • Hægra horn: Lucie Granier (Frakkland / Metz Handball)
  • Línumaður: Sarah Bouktit (Frakkland / Metz Handball)
  • Besti varnarmaður: Kelly Dulfer (Holland / Győri Audi ETO KC)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top