Ágúst Ingi á leið í Val
Egill Bjarni Friðjónsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins er Ágúst Ingi Óskarsson á leið til Íslands- og deildarmeistara Vals.

Ágúst Ingi, sem nýverið rifti samningi sínum við Aftureldingu eftir eins árs dvöl í Mosfellsbæ hefur verið að skoða næstu skref á ferlinum. Hann staðfesti í samtali við Handkastið í síðustu viku að framtíð sín væri óljós, en nú herma heimildir Handkastið að Valur hafi orðið ofan á í baráttunni um leikmanninn.

Handkastið hafði haft veður af því að fleiri lið hafi haft samband við hann eftir að fréttin um framtíð Ágústar birtist hér á Handkastinu.

Ágúst Ingi rifti samningi sínum við Aftureldingu

Ágúst Ingi hefur á undanförnum árum leikið með meðal annars Aftureldingu, Gróttu, Neistanum í Færeyjum og er uppalinn hjá HK. 

Verði félagaskiptin að veruleika verður Ágúst Ingi fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals í sumar en áður hafði félagið fengið þá Bessa Teitsson frá Gróttu, Tjörva Tý Gíslason frá Þýskalandi og Jón Ásgeir Eyjólfsson frá Stjörnunni.

Er Ágústi ætlað að fylla skarð Magnúsar Óla Magnússonar sem ákvað að leggja skóna á hilluna eftir að liðið varð Íslandsmeistari í vor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top