Sögulegur sigur Færeyja
IHF

Færeyjar unnu sinn fyrsta sigur frá upphafi á heimsmeistaramóti U20 kvenna í gær þegar þær sigruðu Króatíu með einu marki, 23–22 í æsispennandi leik í Kína.

Færeyska liðið skrifaði þar með nýjan kafla í handboltasögu landsins á heimsmeistaramótinu í Kína. Eftir tap í fyrsta leiknum gegn Japan þar sem liðið tapaði með tíu mörkum 32-22 stóðu færeysku stelpurnar sig frábærlega og lögðu Króatíu að velli, 23–22. Þetta var fyrsti sigur Færeyja frá upphafi á U20 heimsmeistaramóti kvenna.

Með liðinu leika tveir leikmenn sem nýverið gengu í raðir KA/Þórs þær Agatha Djurhuus og Joan Johannensen en þær munu leika með norðanliðinu í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Joan sem er hægri hornamaður skoraði tvívegis í leiknum en Agatha komst ekki á blað en var tvívegis vikið af velli.

Leikurinn var jafn frá upphafi. Færeyjar byrjuðu betur og náðu snemma tveggja marka forskoti, en Króatía svaraði fyrir sig og komst yfir, 9-8, eftir 20 mínútna leik. Eftir það snerist leikurinn aftur. Færeyjar leiddi í hálfleik 14-11.

Króatía hófu seinni hálfleikinn betur og jöfnuðu fljótt í leikinn, 14-14 en Færeyjar svöruðu með því að ná aftur þriggja marka forskoti, 19-16. Lokamínúturnar voru síðan æsispennandi. Færeyjar skoruðu ekki mark í um tíu mínútur og Króatía náði að jafna, 22–22, þegar tvær mínútur voru eftir.

En Færeyingar áttu síðasta orðið. Þær skoruðu sigurmarkið skömmu fyrir leikslok og þegar síðasta sókn Króatíu endaði í stönginni gátu Færeyingar fagnað sögulegum sigri.

Sigurinn þýðir að Færeyjar eiga enn möguleika á að komast áfram í milliriðilinn þegar þær mæta Noregi í síðasta leik riðilsins í fyrramálið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top