U20 karla landsliðið leikur í Færeyjum um helgina
Valur handbolti

Íslenska karla landsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri heldur til Færeyja um helgina og leikur þar tvo vináttulandsleiki við Færeyinga í undirbúningi þjóðanna fyrir Evrópumótið sem hefst í byrjun júlí.

Íslenska landsliðið flýgur til Færeyja í dag og leikur svo tvo vináttulandsleiki um helgina, annan á laugardag og seinni á sunnudag. 

Fyrri leikurinn fer fram í þjóðarhöllinni á Hálsi og sá seinni í Skála.

Þjálfarar U20 ára landsliðsins eru þeir Ágúst Jóhannsson og Maksim Akbachev en Ísland er í riðli með Austurríki, Lettlandi og Spánverjum á Evrópumótinu sem fram fer í Rúmeníu.

Leikir Íslands á EM:
8.júlí: Ísland - Austurríki
9.júlí: Ísland - Spánn
11.júlí: Ísland - Lettland

Tvö efstu liðin í riðlinum komast áfram í milliriðil.

Hópurinn er eftirfarandi: 

Markmenn:

Alexander Ásgrímsson , ÍR

Jens Sigurðarson, Valur

Aðrir leikmenn:

Andri Erlingsson, ÍBV

Antoine Pantano, Grótta

Ágúst Guðmundsson, HK

Bessi Teitsson, Grótta

Birgir Leó Stefánsson, Haslum

Dagur Leó Fannarsson, Valur

Daníel Montoro, Valur

Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV

Harri Halldórsson, Afturelding

Ingvar Dagur Gunnarsson, FH

Jens Bragi Bergþórsson, KA

Jökull Blöndal Björnsson, ÍR

Magnús Jónatansson, KA

Stefán Magni Hjartarson, Afturelding

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top