Garðar Sindra gefur ekki kost á sér með U20 ára landsliðinu
J.L.Long

Garðar Ingi Sindrason hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér með U20 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í Evrópumótinu í Rúmeníu í næsta mánuði. Ísland er þar í riðli með Austurríki, Lettlandi og Spáni.

Garðar Ingi hefur nýverið gengið til liðs við þýska félagið Gummersbach og tók hann ákvörðun að einbeita sér að þeim verkefnum sem framundan eru hjá honum í atvinnumennskunni. Þar bíða hans nýjar áskoranir eftir félagaskiptin og virðist vera sem svo að hann hafi kosið frekar að nýta sumarið til að undirbúa sig sem best fyrir komandi tímabil.

,,Ég er búinn að vera í veseni með hnéð og öxlina á mér síðan í úrslitakeppninni og vil ég ná því 100% í lag áður en ég flyt út. Þetta er erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka á mínum ferli, enda er alltaf mikill heiður að spila fyrir Ísland. Ég tel að best sé fyrir mig að ná mér 100% í skrokknum og mæta tilbúinn til Þýskalands þar sem mín bíður virkilega krefjandi verkefni þar og mæta ekki of seint út í mitt fyrsta undirbúningstímabil í Þýskalandi," sagði Garðar Ingi þegar Handkastið leitaði svara yfir ákvörðun hans.

Fjarvera Garðars Inga þýðir að þjálfarar U20 ára landsliðsins, Ágúst Jóhannsson og Maksim Akbachev, hafa kallað inn Antoine Óskar Pantano í hópinn fyrir Evrópumótið.

Antoine, sem mun leika með FH á næstu leiktíð, er jafnframt ætlað að fylla það skarð sem Garðar Ingi skilur eftir sig hjá Hafnarfjarðarliðinu. Antoine hefur leikið með Gróttu allan sinn feril.

U20 ára landslið Íslands heldur til Rúmeníu í næsta mánuði en um helgina leikur liðið tvo vináttulandsleiki við Færeyja í undirbúningi beggja þjóðanna fyrir EM.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top