U20 ára drengja landslið Íslands leikur um helgina tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum Í Færeyjum. Sá fyrri fór fram í dag og sá seinni fer fram á morgun klukkan 16:00 á íslensku tíma. Eru leikirnir liður í undirbúningi þjóðanna fyrir EM sem hefst um miðjan júlí. Í fyrri leik þjóðanna sem fram fór í dag höfðu íslensku strákarnir betur með fimm mörum 29-24 eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik 17-11. ,,Íslenska liði byrjaði leikinn af miklum krafti þar sem vörn og markvarsla var til fyrirmyndar. Stákarnir héldu síðan uppteknum hætti í síðari hálfleik og unnu að lokum góðan fimm marka sigur," segir í frétt HSÍ um leikinn. Ágúst Guðmundsson var markahæstur í liði Íslands í dag með sex mörk og Jens Bragi Bergþórsson skoraði fimm. Alexander Ásgrímsson stóð í marki Ísland í dag og varði 14 kot. Mörk Íslands: Ágúst Guðmundsson 6, Jens Bragi Bergþórsson 5, Stefán Magni Hjartarson 4, Andri Erlingsson 3/2, Harri Halldórsson 3, Bessi Teitsson 2, Jökull Blöndal 2, Ingvar Dagur Gunnarsson 1, Antoine Óskar Pantano 1, Birgir Leó Stefánsson 1, Magnús Dagur Jónatansson 1. Varin skot: Alexander Ásgrímsson 14 skot(39%)


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.