Guðmundur Bragi Ástþórsson gengur í sumar í raðir Bregenz í Austurríki eftir tveggja ára dvöl í Danmörku þar sem hann hefur leikið með Bjerringbro-Silkeborg og nú síðast TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni. Guðmundur Bragi sem er uppalinn hjá Haukum sló í gegn í Olís-deildinni áður en hann gekk í raðir Bjerringbro-Silkeborg sumarið 2024. Hann segist hafa heyrt af áhuga frá Bregenz í mars og segist spenntur fyrir nýju ævintýri. ,,Mér líst bara mjög vel á Bregenz. Þetta er flottur klúbbur á frábærum stað. Vonandi verður hlutverk mitt sem stæðst. Eftir fund með þeim og heimsókn þá leist mér bara hrikalega vel á þetta. Ég og umboðsmaðurinn teljum þetta vera gott skref fyrir mig," sagði Guðmundur Bragi en Bregenz endaði í 10.sæti austurrísku deildarinnar á síðasta tímabili en liðið varð síðast meistari í Austurríki tímabilið 2009/2010. ,,Ég er bara hörku spenntur að spila í Austurríki. Ég er með háleit markmið og hlakka til að komast af stað með liðinu. Væntingar mínar eru miklar, mig langar að spila mikið og vinna leiki, þetta er sigursæll klúbbur en hefur verið að ströggla síðustu ár og langar að gera betur." Guðmundur segir að það hafi nokkur önnur félög verið í myndinni en hann segir að það hafi ekki verið í plönunum að koma heim til Íslands í sumar. Nei myndi ekki segja að það hafi verið á borðinu að koma heim til Íslands strax. Hann segir að það hafi verið ljóst frá upphafi að hann yrði bara eitt ár hjá Ringsted þegar hann samdi við félagið síðasta sumar. Hann var ánægður með hlutverk sitt hjá liðinu og hans frammistöðu. ,,Þetta var nú bara eitt ár hjá þeim og ekki hugsað sem framtíðarplan. Þetta var frábært ár hinsvegar þar sem flestir eru sammála um að árangur liðsins fór fram úr væntingum. Hlutverkið mitt var nokkuð stórt hjá Ringsted, það var hörku samkeppni í minni stöðu en ég spilaði helling og við áttum marga góða kafla." Liðið endaði með 20 stig í 11.sæti deildarinnar var aðeins fjórum stigum frá því að komast í úrslitakeppnina í Danmörku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.