Sverrir Arnar framlengir á Nesinu
Grótta Sport

Sverrir Arnar hefur framlengt samningi sínum við við Gróttu til tveggja ára. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðli sínum um helgina.

Sverrir sem er 18 ára gamall línumaður, lék lykilhlutverk með 3.flokki karla í vetur.

,,Hann lék sömuleiðis tvo leiki með meistaraflokki í Gróttu á tímabilinu. Þess fyrir utan hefur hann leikið 25 leiki með Gróttu U og var hluti af bikarmeistaraliði Gróttu í 3.flokki fyrir rúmlega ári síðan," segir í tilkynningunni en Grótta er greinilega afar stolt af bikarmeistaratitlinum sem liðið vann fyrir rúmlega ári síðan.

,,Sverrir er ungur leikmaður og við erum spennt að fylgjast með áframhaldandi þróun hans næstu árin. Auk þess er Sverrir efnilegur þjálfari og hefur verið að þjálfa í yngri flokkum félagsins við góðan orðstír og mun hann halda því hlutverki áfram. Handknattleiksdeildin fagnar þessum nýja samningi og er spennt að sjá Sverri í bláu áfram næstu árin," segir ennfremur í tilkynningunni.

Grótta var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Olís-deildinni á nýjan leik eftir að hafa fallið úr Olís-deildinni tímabilið 2024/2025.

Þjálfarabreytingar hafa orðið á liðinu og á Andri Sigfússon nýráðinn þjálfari liðsins að stýra liðinu upp í Olís-deildina á næstu leiktíð en liðið hefur styrkt sig verulega fyrir átökin á næsta tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top