Nýverið var greint frá því að Gunnar Steinn Jónsson hafi verið ráðinn aðstoðarþjálfari sænsku meistaranna IFK Kristianstad. Félagið átti stórkostlegt tímabil á síðasta ári þar sem það vann þrefalt á sænsku leiktíðinni og á dögunum var jafnframt staðfest að liðið muni leika í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta tímabili. Einar Bragi Aðalsteinsson var einn af lykilmönnum liðsins á síðustu leiktíð. Gunnar Steinn var hluti af þjálfarateymi Hammarby á síðustu leiktíð en þar á undan stýrði hann Fjölni í Olís-deild karla tímabilið 2024–2025. „Þetta er ótrúlega spennandi verkefni sem ég varð að hoppa á þegar tækifærið gafst." ,,Þetta kom óvænt upp en þjálfarinn þeirra var keyptur út úr samningi sínum til Benfica og því losnaði starfið nokkuð óvænt og frekar seint. Ég var þó líka í viðræðum við þá þegar þeir réðu þann þjálfara fyrir tveimur árum." Gunnar Steinn lék á sínum tíma með félaginu og segist alltaf haldið sambandið við aðila innan félagsins sem stýra íþróttamálum félagsins. ,,Ég hef stundum hjálpað þeim að velja íslenska leikmenn, eins og til dæmis Einar Braga. Ég held að þetta liggi aðallega í því að þeir sjái eitthvað í mínum persónuleika og prófíl eftir mín ár hjá félaginu, því reynslan er ekki endilega að vinna með mér," sagði Gunnar Steinn sem á eitt ár undir belti sem aðalþjálfari í meistaraflokki. Gunnar Steinn segir verkefnið bæði spennandi og krefjandi. „Þetta er auðvitað svakalega spennandi verkefni og á sama tíma krefjandi. Kristianstad er einn flottasti klúbbur Skandinavíu og með eina bestu aðstöðuna fyrir unga leikmenn í Evrópu. Liðið vann allt sem hægt var að vinna í Svíþjóð á síðasta tímabili og það verður krefjandi að fylgja því eftir með nýja og unga menn í lykilhlutverkum. Á sama tíma verðum við með í Meistaradeildinni. Það er frábært að sjá sænskt lið aftur í keppninni en ég held að ekkert sænskt lið hafi leikið þar síðan ég var sjálfur leikmaður hjá Kristianstad.“ Hann segist hafa mikinn metnað fyrir þjálfaraferlinum. „Ég er með mikinn metnað fyrir þjálfarastarfinu og þetta tækifæri hjá Kristianstad er frábær staður til að hefja þessa vegferð erlendis. Svo sjáum við hvert hún leiðir okkur.“ Kristianstad hefur um árabil verið vinsæll áfangastaður íslenskra handknattleiksmanna og Gunnar Steinn segir félagið hafa mjög góða reynslu af Íslendingum. „Kristianstad hefur mjög góða reynslu af Íslendingum og leitar gjarnan til þeirra. Íslendingar eru þekktir fyrir mikla vinnusemi og baráttu og eru fljótir að aðlagast nýju umhverfi." Meðal íslenskra leikmanna sem leikið hafa með félaginu eru meðal annars, Ólafur Guðmundsson, Teitur Örn Einarsson og Arnar Freyr Arnarsson. Þá hafa Andrea Jacobsen, Berta Rut Harðardóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir einnig leikið með kvennaliði félagsins. ,,Mér finnst þetta líka frábært milliskref fyrir okkar efnilegustu stráka. Þar fá þeir tvö til þrjú ár við bestu mögulegu aðstæður þar sem þeir æfa eins og atvinnumenn. Ef allt gengur að óskum verða þeir tilbúnir fyrir stærstu lið Evrópu að þeim tíma liðnum.“ Á næsta tímabili verða fjórir Íslendingar í Kristianstad en auk Gunnars Steins og Einars Braga hafa Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason gengið í raðir félagsins. „Við verðum fjórir Íslendingar í liðinu á næsta tímabili og því líklega ekki mikið eftir af Íslendingakvótanum hjá Kristianstad. Ég er hins vegar ótrúlega ánægður með að fá að vinna með þessum frábæru leikmönnum og hlakka til að hjálpa þeim að blómstra.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.