Eitthvað sem ég hafði ekki gert síðan ég var 15 ára
Kristinn Steinn Traustason

Tryggvi Garðar Jónsson er á leið í norsku úrvalsdeildina eftir að hafa samið við nýliða Viking Bergen. Hann kemur til félagsins eftir eins árs dvöl hjá austurríska félaginu Alpla Hard, þar sem hann lék sitt fyrsta tímabil erlendis undir stjórn Hannesar Jóns Jónssonar.

Tryggvi gekk til liðs við Alpla Hard síðasta sumar eftir að hafa orðið bæði Íslands- og bikarmeistari með Fram. Hann er uppalinn hjá Val en segir markmiðið alltaf hafa verið að halda áfram atvinnumannaferlinum erlendis.

„Ég heyrði fyrst frá Viking Bergen í kringum lok apríl og byrjun maí,“ segir Tryggvi í samtali við Handkastið.

Þrátt fyrir að fleiri félög hafi sýnt honum áhuga var Noregur fljótt orðinn eftirsóttasti kosturinn.

„Ég var í viðræðum við einhver önnur lið, en ekkert sem mér fannst meira spennandi en Noregur. Það kom heldur ekki beint til greina að snúa heim, þó einhver íslensk félög hafi verið að kanna stöðuna. Ég sagði strax að markmiðið mitt væri að vera áfram úti.“

Tryggvi segir að upphaflega hafi stefnan verið á áframhaldandi dvöl hjá Alpla Hard. Hann hafi verið í samningsviðræðum við félagið í langan tíma og var kominn með samningstilboð í hendurnar. „Planið var alltaf að vera áfram hjá Alpla. En ég var ekki alveg nógu sáttur við þær breytingar sem voru fram undan hjá liðinu fyrir næsta tímabil, bæði hvað varðar hópinn og mitt hlutverk. Það voru líka önnur atriði sem mér leist ekki nógu vel á og því ákvað ég að leita annarra leiða.“

Hann segist mjög ánægður með ákvörðunina um að ganga til liðs við Viking Bergen. „Mér líst bara mjög vel á þetta. Ég er spenntur fyrir því að fá að spila almennilega sókn aftur og vonandi get ég blómstrað þar.“

Tryggvi gerir upp tímabilið í Austurríki með jákvæðum hætti, þó árangurinn hafi ekki eingöngu verið mældur í mörkum og sigrum.

„Fyrir tímabilið setti ég mér það markmið að komast í gegnum allt tímabilið án meiðsla og spila alla leikina. Það var eitthvað sem ég hafði ekki gert síðan ég var 15 eða 16 ára hjá Val. Til að gera langa sögu stutta þá tókst það.“

Hann segir að Hannes Jón Jónsson, þjálfari Alpla Hard, hafi átt stóran þátt í þeirri vegferð.

„Hannes á stóran þátt í því. Hann hjálpaði mér að aðlaga líkamann að álaginu og byggja ofan á það fyrir framtíðina. Ég lærði mikið á þessum tíma og tel mig vera betri leikmann í dag en þegar ég kom til Austurríkis.“

Næsta verkefni hjá Tryggva verður því að hjálpa Viking Bergen að festa sig í sessi í norsku úrvalsdeildinni, en hann virðist fullur tilhlökkunar fyrir nýjum áskorunum í Noregi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top