Ágúst Ingi í Val
Egill Bjarni Friðjónsson

Ágúst Ingi Óskarsson hefur gengið í raðir Vals en félagið tilkynnti félagsskiptin á fésbókarsíðu sinni, Valur Handbolti fyrir stuttu síðan.

Í tilkynningunni kemur fram að Ágúst Ingi sem lék með Aftureldingu á síðasta tímabili og þar áður með Gróttu spilar sem skytta eða miðjumaður og er einnig mjög góður varnarmaður.

Valsmenn bæta við að hann komi inn í hópinn með góða baráttu og metnað og að hann muni styrkja annars góðan hóp leikmanna.

Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals hafði meðal annars þetta að segja varðandi félagsskiptin - „Ég er ánægður með að fá Ágúst til liðs við okkur. Hann mun koma vel inní hópinn okkar og nýtast í mörgum hlutverkum. Hann hefur góða reynslu úr deildinni og mikill liðsmaður. Það verður gaman að sjá hann í Valstreyjunni."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top