Í dag er liðið nákvæmlega eitt ár frá því að vefsíða Handkastsins leit dagsins ljós. Á þessu fyrsta starfsári hefur markmiðið verið skýrt frá upphafi, að færa handboltaáhugafólki fjölbreyttar fréttir af því sem er að gerast bæði hér á landi sem og erlendis. Á árinu höfum við fjallað um allt það helsta sem gerst hefur í handboltaheiminum, allt frá landsleikjum og stórmótum til félagaskipta og viðtala við leikmenn og þjálfara. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að fylgjast með íslensku handknattleiksfólki sem leikur erlendis þó svo að það er nokkuð ljóst að fréttirnar af Olís-deildum karla og kvenna eru vinsælastar. Viðtökurnar hafa farið fram úr okkar björtustu vonum og hafa lesendur heimsótt síðuna í síauknum mæli og hefur síðan stækkað með hverjum deginum. Á þessu fyrsta ári Handkastsins hafa tæplega 6.200 fréttir birst á síðunni sem gerir rúmlega 16 handboltafréttir á dag. Rúmlega 150.000 manns hafa heimsótt síðuna á fyrsta árinu og hafa heimsóknirnar verið yfir milljón talsins. Við viljum nota tækifærið og þakka öllum lesendum, viðmælendum, samstarfsaðilum og þeim fjölmörgu sem hafa stutt við verkefnið á fyrsta árinu. Án ykkar væri þetta ekki mögulegt. Ljóst er að Handkastið er eini íslenski miðilinn sem sérhæfir sig í fréttum af Þjóðaríþróttinni en auk þess að halda úti vefsíðunni þá fjallar Handkastið einnig um Þjóðaríþróttina í hlaðvarpsfromi tvisvar sinnum í viku frá september - maí. Ef einstaklingar eða fyrirtæki hafa áhuga á að styðja við áframhaldandi umfjöllun Handkastsins tökum við því að sjálfsögðu fagnandi. Allur stuðningur, stór sem smár, hjálpar okkur að halda áfram að efla umfjöllun um handboltann og færa lesendum vandað efni á hverjum degi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.