Í dag fagnar vefsíða Handkastsins eins árs afmæli. Á þessu fyrsta starfsári hefur síðan fest sig í sessi sem öflugur miðill fyrir íslenskt handboltaáhugafólk með fjölbreyttri umfjöllun um íslenskan og erlendan handknattleik. Frá opnun síðunnar hafa birst rúmlega 6.100 frétta um allt það helsta sem gerst hefur í handboltaheiminum. Viðtökurnar hafa verið framar vonum og lesendur hafa heimsótt síðuna í síauknum mæli. Í tilefni af afmælinu ákváðum við að líta aðeins um öxl og taka saman þær fréttir sem vöktu mesta athygli. Hér að neðan má finna tíu vinsælustu fréttir Handkastsins frá því síðan fór í loftið fyrir ári síðan. Við viljum um leið þakka öllum lesendum fyrir stuðninginn á fyrsta árinu. Án ykkar væri Handkastið ekki það sem það er í dag og við hlökkum til að halda áfram að flytja ykkur fréttir úr heimi handboltans um ókomin ár. Hér má sjá tíu vinsælustu fréttir Handkastsins frá upphafi:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.