Daninn, Laurids Søgaard hefur verið ráðinn þjálfari norsku deildarmeistarana í Elverum. Hann tekur við Elverum eftir að hafa stýrt danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland á síðustu leiktíð og gerir þriggja ára samning við norska félagið. Nú þarf danska félagið að leita sér að nýjum aðalþjálfara eftir að Laurids Søgaard hefur verið keyptur út úr samningi sínum af Elverum. Samningur Danans við Nordsjælland var til 2027. Laurids Søgaard sem er einungis 32 ára tekur þar með við Elverum eftir að Börge Lund yfirgaf félagið og tók við THW Kiel á dögunum eftir að Filip Jicha var rekinn. Søgaard kom til Nordsjælland fyrir rúmum sex árum þar sem hann tók þátt í að byggja upp NH-Talent, afreks- og hæfileikaþróunarverkefni félagsins. Síðan þá hefur hann verið lykilmaður í uppbyggingu bæði meistaraflokks og yngri flokka félagsins. „Að yfirgefa Nordsjælland er án efa erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferli mínum sem handboltaþjálfari. En tækifærið sem skyndilega gafst fyrir mig og fjölskyldu mína var á endanum of gott til að hafna, þótt ákvörðunin hafi krafist margra langra og erfiðra vangaveltna.“ Hann segir jafnframt að NH-Talent-verkefnið standi sér sérstaklega nærri hjarta. „NH-Talent er að mörgu leyti mitt barn og líklega það sem ég er stoltastur af. Að byggja verkefnið upp frá grunni í eitt öflugasta afreksumhverfi dansks unglingahandbolta er eitthvað sem ég mun alltaf vera stoltur af.“ Laurids Søgaard hefur Íslandstengingar en hann kom hingað til lands árið 2019 ásamt Christian Bonde Povlsen en þá voru þeir tveir meistaranemar í íþróttafræði við Syddansk Universitet í Odense í Danmörku í heimsókn á Selfossi og fylgdust með öllum æfingum handknattleiksdeildar Selfoss. Þeir Christian Bonde Povlsen og Laurids Søgaard Petersen skrifuðu meistararitgerð um það hvernig lítið bæjarfélag eins og Selfoss getur búið til svona marga handboltamenn sem ná langt á heimsvísu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.