Eftir fína byrjun á leiknum töpuðu stelpurnar í 16 ára landsliði Íslands með tólf mörkum gegn þeim hollensku á Opna Evrópumótinu í dag, 24-12. Íslensku stelpurnar gerðu fyrr í dag jafntefli gegn Georgíu 16-16 en þurftu að sætta sig við stórt tap gegn Hollandi í seinni leik dagsins eftir að hafa verið 6-8 undir í hálfleik. Katrín Ásta Jóhannsdóttir og Kristín Einarsdóttir voru markahæstar í íslenska liðinu með þrjú mörk hvor og Elma Kolbrún Bjarnadóttir og Tinna Dröfn Hauksdóttir skoruðu tvö mörk hvor. Sara Sigurvinsdóttir og Matthildur Helga Ólafsdóttir skoruðu sitthvort eitt markið. Íslenska liðið komst í 2-0 í leiknum en þá kom 7-1 kafli hjá hollenska liðinu sem breyttu stöðunni í 7-3. Í stöðunni 9-7 í seinni hálfleik skoruðu hollensku stelpurnar fimm mörk í röð og breyttu stöðunni í 14-7 og eftir það var ljóst hvert sigurinn væri að stefna. Á morgun leikur liðið lokaleik sinn í milliriðli keppninnar gegn Færeyjum. Markaskorun Íslands: Katrín Ásta Jóhannsdóttir 3, Kristín Einarsdóttir 3, Elma Kolbrún Bjarnadóttir 2, Tinna Dröfn Hauksdóttir 2, Sara Sigurvinsdóttir 1, Matthildur Helga Ólafsdóttir 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.