Björgvin Páll Rúnarsson leikmaður Fjölnis síðustu ár hefur ákveðið að yfirgefa Ísland og leika í Færeyjum á næstu leiktíð. Björgvin Páll hefur gengið í raðir KÍF í færeysku úrvalsdeildinni og leikur þar undir stjórn Viktors Lekve á næstu leiktíð. Björgvin Páll sem er 29 ára og uppalinn hjá Fjölni lék á sínum tíma einnig með ÍR í Olís-deildinni. Hann hefur síðan leikið bæði með Fjölni í Grill66-deildinni og Olís-deildinni undanfarin ár. Í tilkynningunni frá KÍF segir að Björgvin Páll hafi skorað í kringum 1100 mörk fyrir Fjölni í 270 leikjum fyrir félagið. Þá segir í tilkynningunni að Björgvin sé einn leikjahæsti leikmaður í sögu Fjölnis. KÍF endaði í 6.sæti deildarinnar á síðustu leiktíð sem var fyrsta tímabil Viktors Lekve við stjórnvölinn. Stefna félagsins er að gera betur á næstu leiktíð og er ljóst að með komu Björgvins Páls er liðið að fá reynslu mikinn leikmann sem getur hjálpað liðinu á báðum endum vallarins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.