Danska handboltagoðsögnin Mikkel Hansen telur að barna- og unglingaíþróttir séu orðnar of afreksmiðaðar og að börn séu látin taka of snemma ákvörðun um að helga sig einni íþrótt. Hansen segir mikilvægt að börn fái svigrúm til að njóta íþrótta án þess að pressan verði of mikil á unga aldri. „Í dag eru börn komin mjög snemma í fimm æfingar á viku, leiki, næringarráðgjöf og allt sem því fylgir. Ég held að það sé mikilvægt að leyfa börnum að vera ung og njóta þess að vera börn í stað þess að gera íþróttirnar of afreksmiðaðar,“ sagði Hansen í samtali við Ritzau, samkvæmt BT. Sjálfur fékk Hansen tækifæri til að prófa fleiri en eina íþrótt áður en hann valdi handboltann. Á uppvaxtarárunum stundaði hann bæði knattspyrnu, tennis og handbolta áður en handboltinn varð að lokum hans aðalíþrótt. Að mati Hansen eru slík tækifæri mun sjaldgæfari í dag þar sem börn eru hvött til að sérhæfa sig mun fyrr en áður. Hann telur því mikilvægt að skapa umhverfi þar sem gleði og fjölbreytni í íþróttaiðkun fái áfram að njóta sín áður en afreksstefnan tekur yfir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.