Þráinn Orri Jónsson hefur framlengt samningi sínum við Hauka og mun hann því leika áfram með félaginu á næsta tímabii. Þráinn sem verður 33 ára í júlí gerir eins ár samning við Hauka. Þráinn Orri sem er uppalinn í Gróttu gekk í raðir Hauka frá Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku sumarið 2020 en hann hefur leikið 164 leik fyrir Hauka og skorað í þeim 335 mörk ,,Þráinn Orri hefur verið einn besti línumaður deildarinnar eftir komu sína til Hauka en Þráinn lék til að mynda með íslenska landsliðinu á EM 2022 sem leikmaður Hauka þar sem hann varð fyrir því ólani að slíta krossband. Þráinn mun á komandi tímabili mynda gott línumannspar með Sigurði Jefferson sem kemur til liðs við Hauka fyrir komandi tímabil," segir í tilkynningunni frá Haukum. ,,Það að Þráinn framlengi samning sinn við Hauka er mikið ánægjuefni og mun hjálpa Haukaliðinu í þeim markmiðum að vera á toppnum á öllum vígstöðum og keppast um alla þá titla sem í boði eru," segir ennfremur í tilkynningunni. Þráinn Orri varð bikarmeistari með Haukum á síðustu leiktíð en liðið ætlar sér stóra hluti á næstu leiktíð en liðið hefur fengið Sigurð Jefferson og Hjört Inga Halldórsson frá HK.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.