Guðmundur Rúnar hættur með Fjölni
Eyjólfur Garðarsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Guðmundur Rúnar Guðmundsson ekki áfram sem aðalþjálfari karlaliðs Fjölnis í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Guðmundur Rúnar tók við þjálfun liðsins fyrir síðasta tímabil eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Gunnars Steins Jónssonar tímabilið þar á undan í Olís-deildinni. Liðið féll úr Olís-deildinni það tímabil og lék því í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð.

Undir stjórn Guðmundar Rúnars hafnaði Fjölnir í 6.sæti Grill66-deildarinnar. Þrátt fyrir það komst liðið í umspil um laust sæti í Olís-deildinni en féll úr leik í undanúrslitum umspilsins eftir 2-1 tap í einvígi gegn Stjörnunni.

Ekki liggur fyrir hver tekur við þjálfun liðsins en hefur nafn Gunnars Vals Arasonar verið nefnt til sögunnar en hann stýrði kvennaliði Fjölnis á síðustu leiktíð og var aðstoðarmaður Guðmundar með karlaliðið. Hann hætti hinsvegar með kvennaliðið eftir tímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top