Danmörk og Þýskaland leika til úrslita á HM U20 kvenna sem fram fer í Kína. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun klukkan 10:30 og verður sýndur í beinni á YouTube rás IHF. Danmörk tryggði sér sæti í úrslitaleiknum eftir æsispennandi undanúrslitaleik gegn Spáni sem réðst ekki fyrr en í framlengingu. Danir höfðu að lokum betur 30-29. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda og hvorugu liðinu tókst að ná afgerandi forskoti í venjulegum leiktíma. Spánverjar voru marki yfir í hálfleik 13-12, en danska liðið hélt sér ávallt inni í leiknum. Í síðari hálfleik hélt spennan áfram. Spánn virtist um tíma ætla að gera út um leikinn en Danir nýttu sér mistök andstæðinganna og jöfnuðu á lokamínútunum, sem tryggði þeim framlengingu. Danmörk reyndist sterkari aðilinn í framlengingunni og uppskar eins marks sigur í leiknum. Í hinum undanúrslitaleiknum hafði Þýskaland betur gegn Frakklandi með fimm mörkum 31-26 eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 15-15 þá voru þær þýsku sterkari aðilinn í seinni hálfleiknum. Franska liðið skoraði þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiks og breytti stöðunni í 19-16. Þá kom hinsvegar 7-1 kafli hjá þeim þýsku sem voru allt í einu komnar þremur mörkum yfir í stöðunni 20-23. Það bil náði franska liðið aldrei að brúa og fimm marka sigur staðreynd. Leikurinn um bronsið hefst klukkan 8:00 á morgun og úrslitaleikurinn klukkan 10:30. Íslenska landsliðið endaði í 19.sæti á mótinu eftir sigur á Brasilíu í gærmorgun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.