Þýskaland heimsmeistari U20 kvenna
IHF

Þýskaland varð í dag heimsmeistari kvenna 20 ára og yngri eftir öruggan, sjö marka sigur á Danmörku. Lokatölur 33-26 en úrslitaleikur heimsmeistaramótsins fór fram í Jinzhong í Kína eins og allt mótið.

Danir byrjuðu leikinn betur og komust snemma yfir, en Þjóðverjar unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn. Þjóðverjar leiddu með einu marki í hálfleik 15-14 og náðu síðan yfirhöndinni í síðari hálfleik.

Þrátt fyrir að Danir jöfnuðu metin um miðjan síðari hálfleik héldu Þjóðverjar haus og sigldu öruggum sigri í höfn en þar reyndust tapaðir boltar Dana þeim dýrkeyptir þar sem liðið spilaði 7 á 6 sóknarleik og komumst þýsku stelpurnar aftur yfir í leiknum með því að skora tvö mörk í tómt markið á stuttum tíma.

Chiara Rohr var markahæst í liði Þýskalands með átta mörk.

Þetta er annar heimsmeistaratitill Þýskalands í þessum aldursflokki en sá fyrri kom árið 2008. Þá, líkt og nú, lagði þýska liðið Danmörku að velli í úrslitaleiknum.

Fyrr í dag vann Frakkland síðan til bronsverðlauna eftir sigur á Spáni. Lokatölur í þeim leik 24-21 eftir að Frakkar hafi verið yfir með fimm mörkum í hálfleik 16-11.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top