Eiður Rafn Valsson er nýgenginn í raðir FH en félagaskiptin voru kunngjörð nú í morgun. Félagaskiptin komu mörgum á óvart enda eru bara rúmir 3 mánuðir síðan Eiður Rafn skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við Fram. En hlutirnir eru oft fljótir að breytast og nú er ljóst að Handknattleiksdeildir FH og Fram hafa orðið ásátt um kaup, kjör og félagaskipti Eiðs Rafns í Kaplakrikann. Eiður Rafn sem er fæddur árið 2005 byrjaði fyrstu skrefin sín í handbolta hjá Þrótti í Laugardalnum en færði sig yfir í Fram eftir 5. flokk þar sem hann hefur verið síðan. Hann varð Íslands- og Bikarmeistari með liðinu vorið 2025 og einnig hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Á nýliðnu tímabili skoraði hann 63 mörk í Olís deildinni. Handkastið heyrði í Eiði og fékk viðbrögð hans við félagaskiptunum. "Ég er afar spenntur og stoltur að ganga til liðs við FH. Á sama tíma er það stór ákvörðun að kveðja uppeldisfélagið sitt og vil ég þakka FRAM innilega fyrir þann stuðning, traust og tækifæri sem félagið hefur veitt mér í gegnum árin" "Eftir vandlega íhugun fann ég þó að rétti tíminn væri kominn til að takast á við nýjar áskoranir. Ég tel að umhverfið hjá FH muni veita mér þau tækifæri sem ég leitast eftir til að vaxa bæði sem leikmaður og einstaklingur. Ég hlakka til að hefja þennan nýja kafla og leggja allt mitt að mörkum fyrir FH"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.