Kolbrún Ída framlengir við Fjölni

Markmaðurinn Kolbrún Ída Kristjánsdóttir hefur framlengt samning sinn við Fjölni.

Kolbrún Ída er fædd árið 2010 og er því aðeins 16 ára. Hún er efnilegur markmaður sem hefur m.a verið valin í Reykjavíkurúrvalið. Bindur Fjölnir miklar vonir við hana á næstu árum.

"Það gleður okkur mjög að Kolbrún hafi framlengt samning sinn við félagið. Hún hefur tekið miklum framförum undanfarin misseri og við bindum miklar vonir við áframhaldandi þróun hennar. Við hlökkum til að fylgjast með henni vaxa og dafna í Fjölnisbúningnum" er haft eftir meistaraflokksráði kvenna í tilkynningu frá félaginu í dag.

"Ég er rosalega spennt fyrir komandi tímabili og hlakka til að bæta mig sem leikmaður í þessu geggjaða liði" segir Kolbrún Ída jafnframt í tilkynningunni sem Fjölnir gaf frá sér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top