Sonur Gústa Jó í Fram
Fram

Markvörðurinn, Jóhann Ágústsson hefur samið við Fram og gengur þar með í raðir félagsins frá uppeldisfélagi sínu Val.

Jóhann sem er fæddur árið 2008 kemur inn í meistaraflokk Fram ásamt því að vera gjaldgengur í 3.flokk og Fram 2 í Grill66-deildinni.

,,Jói eins og hann er kallaður kemur úr mikilli handboltafjölskyldu en systur hans tvær þær Ásdís og Lilja eru nýbakaðir Íslandsmeistarar með Val sem og faðir hans sem er þjálfari meistaraflokks Vals. Þá er móðir hans að sama skapi þjálfari í yngri flokkunum hjá Val við góðan orðstýr. Við erum mjög spennt að fá Jóa inn til okkar og spennt að sjá hann vaxa og dafna í okkar herbúðum," segir í tilkynningunni frá Fram.

Jóhann var lengi vel leikstjórnandi en hefur einbeitt sér að markmannsstöðunni síðustu misseri og lék með 3.flokki og Val 2 í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð í marki.

Fram hefur misst Garp Gylfason í Fjölni og þá er Breki Hrafn Árnason markvörður Fram á leið til Benfica í Portúgal.

Þess má til gamans geta að Jóhann er fréttaritari hér á Handkastinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top