Tvö íslensk lið taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar
Baldur Þorgilsson

Tvö íslensk félagslið taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð, Valur og FH. Valur verður í 2. styrkleikaflokki þegar dregið verður og FH í 3. styrkleikaflokki.

Haukar sóttu einnig um þátttöku í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en fengu ekki sæti í keppninni. Á síðustu leiktíð lék Fram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og þar áður léku Valur og FH í keppninni.

Evrópska handknattleikssambandið (EHF) hefur staðfest þau 32 lið sem taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildar fyrir næstu leiktíð. Dregið verður í riðla föstudaginn 17. júlí og hefst athöfnin klukkan 09:00 að íslenskum tíma.

Keppnin sjálf hefst í lok september og verður leikin samkvæmt nýju keppnisfyrirkomulagi sem EHF vonast til að geri mótið enn meira spennandi. Riðlakeppnin stendur yfir frá 29. september til 2. desember, þar sem 32 lið keppa um sæti í útsláttarkeppninni. Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram.

Í umspilinu bætast við liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þar verða alls 28 lið sem mætast í tveimur leikjum heima og að heiman í febrúar og mars 2027.

Sigurvegarar umspilsins tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum þar sem liðunum sem enda í fimmta sæti seinni riðlakeppni Meistaradeildarinnar verður einnig bætt inn í keppnina.

Að því loknu taka við átta liða úrslit áður en keppninni lýkur með EHF Final 4 dagana 22. og 23. maí 2027, þar sem fjögur lið berjast um Evrópudeildarmeistaratitilinn. MT Melsungen eru ríkjandi Evrópumeistarar.

Hér að neðan er hægt að sjá styrkleikaflokkana í Evrópudeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top